149. löggjafarþing — 84. fundur,  26. mars 2019.

fjármálaáætlun 2020--2024.

750. mál
[19:45]
Horfa

Jón Þór Ólafsson (P):

Herra forseti. Bara svo að ég gleymi því ekki eða renni út á tíma með það langar mig að spyrja hæstv. forsætisráðherra Katrínu Jakobsdóttur hvort endurskoðun stjórnarskrárinnar, sem hefur verið á dagskrá forsætisráðherra og er í stjórnarsáttmálanum, sé ekki örugglega fullfjármögnuð.

Það er gott að heyra að það sé þrýstingur og menn séu að semja sín á milli við stjórnarborðið um þessa hluti og breytingarnar séu kannski, hvað eigum við að segja, prógressífari en hæstv. skattamálaráðherra Bjarni Benediktsson hefði viljað. Ég þarf að skoða þessi viðmið sem hæstv. forsætisráðherra nefndi til að sjá hvað það þýðir. En mér sýnist samt sem áður að þeir sem eru þarna undir, þeir sem eru með persónuafsláttinn, uppfylla hann ekki og detta ekki einu sinni einu inn í þetta skattþrep, fái þá ekkert lægra skattþrep, séu ekkert að fá af því sem skilar sér (Forseti hringir.) í heild af kostnaði ríkisins. En hæstv. forsætisráðherra ætlar að fara yfir það með okkur.