fjármálaáætlun 2020--2024.
Herra forseti. Tillögurnar eru sérstaklega hugsaðar þannig að hlutfallslega lækkunin sé mest á þá sem eru í lágtekjuhópum og lægri millitekjuhópum. Þá erum við að tala um fólk á vinnumarkaði. Við erum ekki að tala um fólk í algerum hlutastörfum en ég myndi telja að þetta komi sér mjög vel fyrir stóra hópa þeirra sem t.d. eru launþegar almannatrygginga, af því að hv. þingmaður nefnir þá hópa. Það er markmiðið með breytingunum. Ég var hér að gera skattamálaráðherrunum upp skoðanir en ég var bara að vitna í hefðbundna vinstri og hægri pólitík, bara svo að því sé haldið til haga.
En aðeins um stjórnarskrárvinnuna. Jú, það er meðal þess sem hv. þm. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson var að spyrja um. Það eru fjármunir sem liggja í digrum sjóðum í forsætisráðuneytinu til þess að innleiða stefnumál. Meðal þess sem þar er verið að skipuleggja er almenningssamráð í kringum stjórnarskrá sem kostar sitt, þ.e. rökræðukönnun sem hefur legið fyrir í upphaflegu plani eða áætlun stjórnarskrárvinnunnar þannig að það er gert ráð fyrir því.