149. löggjafarþing — 84. fundur,  26. mars 2019.

fjármálaáætlun 2020--2024.

750. mál
[19:47]
Horfa

Þorsteinn Víglundsson (V):

Frú forseti. Við höfum rætt hér aðeins hversu raunhæf þessi fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar er. Ég ætla svo sem ekki að fara nánar út í þá sálma varðandi efnahagslegar forsendur, þó svo að það sé greinilega viðkvæmur punktur fyrir ríkisstjórnina. Það sem ég hef áhuga á eru launaforsendur áætlunarinnar. Þar segir að gengið sé út frá því að fyrstu þrjú ár áætlunarinnar muni launabætur til stofnana verða 0,5% umfram verðlag í stað 1,5%, sem komi síðar, á árunum 2023–2024.

Þetta er talsvert lægri tala en Hagstofan, í þeirri þjóðhagsspá sem gjarnan er vísað til í forsendum áætlunarinnar, gerir ráð fyrir í almennum launabreytingum á vinnumarkaði á sama tíma. Það vekur nokkra athygli að ríkisstjórnin ætli að sækja hagræðinguna með þessum hætti til opinberra starfsmanna. Mig langar að spyrja hæstv. forsætisráðherra út í þetta. Mér finnst skilaboðin í raun og veru inn í yfirstandandi kjaraviðræður við opinbera starfsmenn vera mjög skýr. Ef opinberir starfsmenn ætla að sækjast eftir sambærilegum launabreytingum og sóttar eru mjög fast núna á almenna vinnumarkaðnum verður þeim kröfum einfaldlega mætt með uppsögnum af hálfu hins opinbera. Það er væntanlega eina hagræðingin sem opinberar stofnanir geta almennt gripið til ef þær fá ekki þessar launahækkanir bættar í fjárframlögum. Er þetta réttmætt mat, hæstv. forsætisráðherra? Eru þetta virkilega skilaboð ríkisstjórnarinnar til opinberra starfsmanna?

Og kannski í því samhengi: Eru þetta líka skilaboð ríkisstjórnarinnar til eldri borgara og örorkulífeyrisþega? Mér sýnist að uppreiknun bótafjárhæða þar eigi að fara fram út frá sömu viðmiðum.