149. löggjafarþing — 84. fundur,  26. mars 2019.

fjármálaáætlun 2020--2024.

750. mál
[19:52]
Horfa

Þorsteinn Víglundsson (V):

Herra forseti. Ég get ekki sagt að svarið hafi verið skýrt en ég get ekki túlkað það öðruvísi en að markmiðið sé mjög einfalt og skýrt. Launabætur verði bara 0,5% umfram verðlag. Hverjar þær launahækkanir verða sem um verður samið að öðru leyti verði stofnanir að sækja í hagræðingu, væntanlega þar með talið uppsagnir á opinberum starfsmönnum.

Það sem ég hef kannski meiri áhyggjur af er það vandamál sem hefur verið mjög gegnumgangandi á íslenskum vinnumarkaði, getum við sagt, þ.e. kynbundinn launamunur sem snýr sérstaklega að stöðu kvennastétta. Það hefur m.a. verið rætt af hálfu þessarar ríkisstjórnar um nauðsyn þess að taka á þessu vandamáli hjá fjölmennum kvennastéttum, kennurum, hjúkrunarfræðingum og hinum ýmsu umönnunarstéttum. Ég get ekki séð að í þessu svigrúmi sem ríkisstjórnin ætlar sér, 0,5% launahækkanir almennt umfram verðlag, sé nokkur leið að taka á þessum vanda á gildistíma fjármálaáætlunar á næstu fimm árum. Ég alla vega auglýsi eftir því hjá hæstv. forsætisráðherra og ráðherra jafnréttismála: Hvernig ætlar ríkisstjórnin að taka á stöðu kvennastétta með þennan þrönga stakk sem hefur verið sniðinn?