149. löggjafarþing — 84. fundur,  26. mars 2019.

fjármálaáætlun 2020--2024.

750. mál
[19:53]
Horfa

forsætisráðherra (Katrín Jakobsdóttir) (Vg):

Herra forseti. Ég hefði nú talið að hv. þingmaður myndi fagna því að ég vildi innleiða í auknum mæli endurmat opinberra útgjalda. Ég held að hv. þingmenn úr öllum flokkum ættu að geta sammælst um það. Það er ekki óljóst eða loðið heldur erum við einmitt að fara í þau verkefni núna, höfum verið að hefja þá vegferð við innleiðingu laga um opinber fjármál, hvernig við getum tekið á þessu endurmati.

Hvað varðar kvennastéttirnar þá var við síðustu kjarasamninga skrifað undir bókun um kvennastéttir og stéttir auðvitað almennt hjá BHM um að það þyrfti sérstaklega að fara fram skoðun á aðstæðum þeirra og kjörum. Sú vinna hefur verið á hendi hæstv. heilbrigðisráðherra, hæstv. fjármálaráðherra og forsætisráðherra. Fyrst og fremst hefur raunvinnan farið fram hjá hæstv. heilbrigðisráðherra sem hefur einmitt verið að fara yfir starfsaðstæður kvennastétta í heilbrigðiskerfinu sem var lögð sérstök áhersla á í þessari bókun. Ég á von á því að sú vinna muni að sjálfsögðu skila sér fyrir þær kvennastéttir hjá hinu opinbera.