fjármálaáætlun 2020--2024.
Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni andsvarið. Í fyrsta lagi vil ég segja að ég er ekki sammála þeirri nálgun að eldri borgarar og örorkulífeyrisþegar séu einn og sami hópurinn. Af hverju er ég ekki sammála þeirri nálgun? Ef við skoðum gögnin, um þróun ráðstöfunartekna þessara hópa, kemur fram á tekjusögunni, sem ég hef vitnað í hér í dag, að að meðaltali hafa ráðstöfunartekjur eldri borgara aukist langt umfram ráðstöfunartekjur öryrkja þegar við skoðum til að mynda síðastliðin 10 ár. Að meðaltali hafa kjör eldri borgara batnað mun meira en kjör örorkulífeyrisþega. Eignastaða þess hóps er líka miklu mun betri. Þess vegna hef ég sagt: Það er mikilvægt, þegar við ræðum um málefni eldri borgara, að við horfum sérstaklega til þeirra hópa innan þess mengis, þess stóra og fjölbreytta mengis, sem eru verst settir. Það gerði félagsmálaráðherra með því að setja niður sérstakan hóp til að skoða hvaða hópar eldri borgara væru verst settir. Sá hópur skilaði af sér tillögum fyrir skemmstu þar sem kemur fram að það eru þeir hópar sem hafa ekki full réttindi í almannatryggingakerfinu hér heima. Það finnst mér vera forgangsverkefni þegar kemur að eldri borgurum. Að sjálfsögðu má halda áfram að vinna að því.
Ég vil líka minna á það, sem við hv. þingmaður höfum áður rætt, að framfærslukerfi eldri borgara var breytt með lagabreytingu 2016 og hún hafði í för með sér verulega aukin útgjöld til þess hóps. Þegar kemur að örorkulífeyrisþegum hins vegar er ríkisstjórnin að leggja til fjármuni inn í breytingar á framfærslu örorkulífeyrisþega og þar þarf að gera betur. Ég er sammála hv. þingmanni um það.
Ég nefndi í ræðu minni áðan að það skiptir líka máli hvernig þeim fjármunum er varið. Hæstv. félags- og barnamálaráðherra hefur sagt að honum finnist mjög mikilvægt að vinda ofan af skerðingunni sem ég veit að hv. þingmaður hefur líka rætt töluvert um. Það skiptir líka máli að horfa til fleiri þátta í því kerfi og ég kem aðeins nánar að þessu í seinna andsvari.