149. löggjafarþing — 84. fundur,  26. mars 2019.

fjármálaáætlun 2020--2024.

750. mál
[20:10]
Horfa

samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra (Sigurður Ingi Jóhannsson) (F):

Virðulegur forseti. Fjármögnun samgönguframkvæmda er einmitt framþung. Ofan í þessa 5,5 milljarða sem við höfum til framkvæmda samkvæmt fjármálaáætluninni frá því í fyrra, árið 2019, 2020 og 2021, erum við að bæta 4 milljörðum við á ári næstu fimm árin, þ.e. 2020, 2021, 2022, 2023 og svo er spurningin við fjármálaáætlun á næsta ári hvað við getum hugsanlega bætt þar við í framhaldinu. Og á sama hátt er heldur ekki útilokað að menn sjái fyrir sér að það sé hægt, eins og ég ræddi í fyrra, þegar miklum framkvæmdum lýkur, til að mynda í kringum Landspítalann, þegar kaup á þyrlum eru yfirstaðin og ýmis önnur stór verkefni sem við höfum verið með, að forgangsraða til lengri tíma og þannig ná þessu 1,5% sem að var stefnt í samgönguáætlun á öðru og þriðja tímabili eins og þingmaðurinn kom inn á. Ég sé það enn fyrir mér að þetta getum við þróað á þann veg.

Við erum að leggja til umtalsverða peninga úr ríkissjóði núna. Og eins og ég sagði í inngangi mínum útilokar það ekki umræðuna sem við tókum dálítið í tengslum við samgönguáætlun um gjaldtöku á vegum, hún tengist því hvernig við ætlum að fjármagna samgöngukerfið til framtíðar. Við erum hins vegar að leggja af stað núna í þessar framkvæmdir með fjármuni úr ríkissjóði.

Varðandi borgarlínuna og fjárveitingar þar erum við, eins og ég kom inn á, að hefja samtal eins og um hefur verið rætt við Samtök sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu um aðkomu ríkisins, en við erum sammála um þennan stóra pakka sem eru framkvæmdir upp á kannski 100 milljarða, þar sem inni eru allar stofnbrautir (Forseti hringir.) á höfuðborgarsvæðinu og borgarlínan til næstu 15 ára, mjög spennandi verkefni sem við eigum eftir að þróa í samstarfi við sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu.