149. löggjafarþing — 84. fundur,  26. mars 2019.

fjármálaáætlun 2020--2024.

750. mál
[20:20]
Horfa

samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra (Sigurður Ingi Jóhannsson) (F):

Virðulegur forseti. Svarið við síðustu spurningunni, ef það var spurning, er: Já, þetta er ábyrg fjármálaáætlun. Hún er vissulega til fimm ára og hún er háð nokkrum óvissuþáttum. Einn af þeim eru samskipti við sveitarfélögin sem eru hitt stjórnsýslustigið, jafnstætt ríkinu. Við þurfum þar af leiðandi að eiga heiðarleg samtöl við þau eins og jafningja um málefni þeirra og fjármuni.

Hv. þingmaður spurði: Hvað gerist kannski? Það er nefnilega það góða við þessa fimm ára fjármálaáætlun að hún tekur á mörgu af því. Við erum með svo öflugt efnahagslíf. Við höfum búið svo vel um hnútana á síðustu árum að við erum í stakk búin til að takast á við slíka óvissu, fari hlutirnir á verri veg. Það munum við líka gera í sambandi við sveitarfélögin og þess vegna segi ég: Það mun ekki gerast við núverandi lagaramma (Forseti hringir.) að þau atriði verði skorin niður sem hv. þingmaður var að tala um, verði sú leið farin, heldur verður tekið á því með öðrum hætti.