149. löggjafarþing — 84. fundur,  26. mars 2019.

fjármálaáætlun 2020--2024.

750. mál
[20:22]
Horfa

Njáll Trausti Friðbertsson (S):

Herra forseti. Í þeirri fjármálaáætlun sem við ræðum eru lagðar fram hugmyndir sem voru samþykktar í samgönguáætlun í byrjun febrúar og snúa að uppbyggingu flugvallakerfis landsins sem hefur verið í lamasessi varðandi fjármögnun, sérstaklega frá 2011 þar sem raunverulega öll festa undir fjármögnun kerfisins hrundi. Sjá má á mynd á bls. 259 í fjármálaáætlun að gert er ráð fyrir gríðarlegum vexti í ferðaþjónustu næstu 15 árin, í komum ferðamanna til landsins. Einnig er talað um í því ágæta plaggi að í flugtengdum greinum sé gert ráð fyrir mikilli aukningu á komandi árum.

Þess er getið að til að fjármagna alþjóðaflugvellina þrjá, fyrir utan Keflavík, þ.e. Reykjavík, Akureyri og Egilsstaði, vanti 7–8 milljarða upp á til að fjármagna það sem þarf þar að gera til að tryggja flugöryggi í landinu.

Það hafa verið boðaðar og eru samþykktar í samgönguáætlun hugmyndir um hvernig eigi að standa að uppbyggingu flugvallakerfisins og að kerfið sé sameinað, þessir fjórir alþjóðaflugvellir, í eina heild. Því langar mig að spyrja hvort sú vinna sé farin af stað og þær hugmyndir sem voru samþykktar í samgönguáætlun og eru síðan boðaðar í fjármálaáætluninni, eða hvort vinnan sé að fara af stað, enda er tíminn fljótur að líða. Nú eru níu mánuðir til næstu áramóta þar sem er boðað í samgönguáætlun og síðan aftur í ríkisfjármálaáætlun að hugmyndir um að reka alla fjóra alþjóðaflugvellina saman í einu kerfi taki gildi.

Ég vil byrja á þessu og síðan tökum við fleira á heilli mínútu á eftir.