149. löggjafarþing — 84. fundur,  26. mars 2019.

fjármálaáætlun 2020--2024.

750. mál
[20:27]
Horfa

samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra (Sigurður Ingi Jóhannsson) (F):

Virðulegur forseti. Varðandi skosku leiðina gildir það bæði um þá leið og það sem við vorum að ræða hérna áðan um varaflugvellina undir hatti Isavia, að þetta eru auðvitað ekki lengur einhverjar hugmyndir heldur er þetta samþykkt þingsályktun frá Alþingi, og stóð aukinn meiri hluti á bak við skosku leiðina.

Við erum með ákveðna fjármuni. Við höfum ekki verið að leita eftir meira fjármagni. Við viljum stokka upp þá aðferðafræði sem við höfum notað til þess að styðja við innanlandsflugið því að það hefur ekki reynst góð leið. Þess vegna viljum við fara svokallaða skoska leið, eins og sagt er í þessari ágætu skýrslu hv. þingmanns um breytingarnar á fluginu, og undirbúa hana þannig að hún geti tekið gildi einhvern tímann á árinu 2020.

Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir að spyrja um netöryggismálin, sem ég hef þó ekki margar sekúndur til að svara. En þar er einmitt einn af veikleikunum í fjármálaáætluninni, að við erum ekki með fjármagnað það frumvarp (Forseti hringir.) sem hér liggur fyrir þinginu. Það verður þá verkefni okkar á næstunni að reyna að leita leiða til þess að það dragist ekki úr hömlu að byggja upp það öryggi sem þar þarf að eiga sér stað.