fjármálaáætlun 2020--2024.
Virðulegi forseti. Hæstv. ráðherra má var eins hissa og hann vill vera. Ég var að spyrja um stefnu stjórnvalda, þeirra sem sitja á ráðherrabekkjunum hér fyrir aftan mig. Það svar kom bara alls ekki fram.
Skiptum aðeins um gír af því að það er meira sem þarf að tala um, þ.e. frystingin á jöfnunarsjóðnum fyrstu tvö ár fjármálaáætlunarinnar. Fólk hefur áhyggjur af því að það komi niður á t.d. NPA-samningum og fjölda NPA-samninga sem sveitarfélög munu geta fjármagnað, af því ríkið kemur að fjármögnun þeirra og m.a. í gegnum jöfnunarsjóðinn. Það er ómögulegt að sjá í þessari frystingu hvernig þær skerðingar dreifast almennt séð á þau verkefni sem jöfnunarsjóðurinn fjármagnar. Það væri ágætt að fá fram orð ráðherra um hvaða áhrif það hefur á t.d. NPA-samningana.