149. löggjafarþing — 84. fundur,  26. mars 2019.

fjármálaáætlun 2020--2024.

750. mál
[20:34]
Horfa

samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra (Sigurður Ingi Jóhannsson) (F):

Virðulegur forseti. Fyrst aðeins áfram um veggjöld, hafi ég ekki verið nógu skýr. Stjórnvöld, ríkið, eru sammála um að fara í samtal við sveitarfélög á höfuðborgarsvæðinu, m.a. um gjaldtöku. Við erum líka að velta fyrir okkur samvinnuverkefnum á borð við það sem Hvalfjarðargöngin voru, sem endaði með einhvers konar gjaldtöku, þannig að það sé alveg skýrt,

Varðandi jöfnunarsjóðinn er þetta fimm ára áætlun. Þetta eru ekki fjárlög. Það hefur komið fram að verði þessi leið farin með einhverjum hætti, ekki endilega á nákvæmlega þann hátt og er skrifað í fjármálaáætlun af því að við eigum eftir að eiga talsvert samtal við sveitarfélögin um útfærsluna eða leiðirnar og hvort aðrar leiðir séu færar, þá þarf lagabreytingu til. Í þeirri lagabreytingu verður að sjálfsögðu tekið á því að það komi ekki niður á þeim viðkvæmu málaflokkum sem ég ræddi áðan. Það verður auðvitað ekki látið bitna sérstaklega á ákveðnum svæðum þar sem fámenni er og menn þurfa mest á þessum (Forseti hringir.) stuðningi að halda eða NPA-samningum eða öðru slíku. Það liggur í augum uppi að lagabreytingin mun taka á því ef til þessa kemur. Þetta er áætlun, ekki fjárlög.