149. löggjafarþing — 84. fundur,  26. mars 2019.

fjármálaáætlun 2020--2024.

750. mál
[21:00]
Horfa

samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra (Sigurður Ingi Jóhannsson) (F):

Virðulegi forseti. Varðandi þessa mikilvægu vegi, Reykjanesbrautina, Vesturlandsveginn og Suðurlandsveginn, þá eru þetta einmitt þeir vegir sem við leggjum hvað mesta áherslu á og þar er talað um flýtiframkvæmdir. Það er hins vegar talsvert eftir af þeim framkvæmdum og alveg ljóst að það verður ekki búið að tvöfalda Reykjanesbrautina alla á fjórum árum eða aðskilja akstursreinar frá Reykjavík upp í Borgarnes eða austur að Hellu á fjórum árum. Það verður einfaldlega ekki hægt að vinna allar þessar framkvæmdir á þeim tíma, en það verður búið að gera mjög mikið á þessum fjórum árum. Síðan í framhaldinu þarf að ljúka þeim verkefnum sem þar standa út af, á næstu árum þar á eftir, en það mun ekki gerast eftir tíu eða tólf ár eins og menn höfðu miklar áhyggjur af fyrir einu ári. Innan fjögurra ára verður þó ekki hægt að ljúka öllum þessum verkefnum og öllu öðru sem við ætlum að gera. Ekki einu sinni þó að við settum alla fjármunina í þetta, við hefðum einfaldlega ekki getu til þess.

Fyrst kannski varðandi gamla Herjólf. Það hefur verið pólitískt loforð um að hann sé til taks, en hann verður ekki hluti af rekstrinum nema rekstraraðilar vilji fara að reka hann. Hann verður til taks fyrst og fremst sem varaskip á meðan menn eru að prófa nýja skipið og það kemur í ljós hvernig það muni virka.

Það er rétt að það hefur orðið verulegur dráttur á afhendingunni og það er ekkert nýtt að það hafi verið dráttur á henni. Skipið átti jú að koma fyrri part fyrrasumars upphaflega, þannig að það hefur verulega dregist hjá skipasmíðastöðinni. Þess vegna safnast þar upp tafagjöld. Nú eru erfiðir og harðir samningar í gangi milli Vegagerðarinnar og skipasmíðastöðvarinnar um þessa hluti. Ég vonast svo sannarlega til að það endi vel og skipið komi sem fyrst heim og verði þá fullbúið þegar það gerist. En það væri fráleitt að fara að gera ráð fyrir 1 milljarði til viðbótar (Forseti hringir.) í fjármálaáætlun vegna þess að skipið var fullfjármagnað og algerlega samkvæmt þeim samningi sem útboðið snerist um.