149. löggjafarþing — 84. fundur,  26. mars 2019.

fjármálaáætlun 2020--2024.

750. mál
[21:07]
Horfa

samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra (Sigurður Ingi Jóhannsson) (F):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni. Það er ánægjulegt að alla vega einhverjir þingmenn hafa mjög mikinn áhuga á að lesa fjármálaáætlunina. Ég get verið sammála hv. þingmanni um að auðvitað vildi maður gjarnan sjá margt öðruvísi og hafa miklu meiri fjármuni úr að spila, vegna þess að verkefnin eru sannarlega næg.

Varðandi flugvellina er vissulega rétt að við höfum verið með alþjóðaflugvellina að hluta til sem byggðu á gömlum herflugvélum. Að vísu var Reykjavíkurflugvöllur endurbyggður að mestu leyti árið 1999, að ég held. En það er alveg rétt að um hann hefur staðið talsverður styr og það er líka rétt hjá hv. þingmanni að svar mitt er að það mál er í nefnd.

Hv. þingmaður spurði hvort ekki kæmi eitthvað jákvætt út úr því og ég held að það komi mjög margt jákvætt út úr því. Hver nefndin á fætur annarri hefur verið sett á laggirnar til að skoða þá hluti en það hefur aldrei verið klárað og því svarað til að mynda hvað þurfi til þess að Reykjavíkurflugvöllur verði raunverulegur varaflugvöllur. Hvað myndi það kosta? Hverju þyrfti að breyta? Er til annað svæði í nágrenni höfuðborgarsvæðisins sem gæti nýst til þessara hluta? Og hvað kostar það að menn hafi raunverulega valkosti? Hvaða tíma mun það taka ef menn koma sér saman um að flytja flugvöllinn, þ.e. svo fremi að þeir verði búnir að finna annað svæði jafn gott eða betra en núverandi Reykjavíkurflugvöll? Hvenær verður hann þá tilbúinn og hvað mun það kosta? Ég held að mörgum af þeim spurningum verði svarað.

En á meðan á því stendur erum við hreinlega að fara í endurskoðun á því að koma upp flugstöð í tengslum við Umferðarmiðstöðina, BSÍ, í samstarfi við höfuðborgina. (Forseti hringir.) Það er að fara af stað samkeppnisútboð á hugmyndum þar að lútandi (Forseti hringir.) þar sem flugstöðin yrði í tengslum við eða í því sama húsi.