fjármálaáætlun 2020--2024.
Virðulegi forseti. Framkvæma hratt og vel, það er áhugavert ef við lítum til sjúkrahótela og fleira á Íslandi í dag. Árið 2017 kom út skýrsla, Milljón tonn fyrir árið 2030, þar sem þáverandi umhverfisráðherra fékk greiningu á því hvað þyrfti til til að ná niður kolefnisútblæstri til að standast viðmið og alþjóðasamninga. Þar kom m.a. fram að almenningssamgöngur myndu þurfa að aukast til þess að jafna út lýðfræðilega umferðaraukningu, að 100.000 útblásturslausir bílar þyrftu að vera komnir inn í bílaflotann fyrir 2030 og afgangurinn af bílaflotanum þyrfti að eyða minna, bæði litlir og stórir bílar. Nú eru um það bil 10.000–20.000 nýskráningar á bílum og þetta eru 100.000 bílar sem þarf að ná fyrir 2030. Staðan nú er í kringum 5.000 eða eitthvað því um líkt.
Í fjármálaáætluninni er fjallað um fjölda vistvænna bíla sem hlutfall af fjölda og þar er staðan árið 2018 5,5%, viðmið 2020 á að vera 9% en fjórum árum seinna 10%, heilt prósent í aukningu. Það nær ekki þeim viðmiðum sem sett eru fram í þessari skýrslu og þessi hluti, 100.000 útblásturslausir bílar, er ekkert lítill hluti, það er 1/4 af þessari áætlun um milljón tonn í minnkun fyrir 2030.
Mig langar til að spyrja hæstv. ráðherra: Af hverju er ekki lagt meira í? Lagðar eru fram ákveðnar hugmyndir um það hvernig ætti að ná þessu markmiði en miðað við stefnu stjórnvalda, upp á 10% í lok þessarar áætlunar, er það langt frá því að nást.