149. löggjafarþing — 84. fundur,  26. mars 2019.

fjármálaáætlun 2020--2024.

750. mál
[21:14]
Horfa

samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra (Sigurður Ingi Jóhannsson) (F):

Virðulegur forseti. Hv. þingmaður er glöggur að finna smávillur í hlutunum. Ég tók einmitt eftir þessu í dag, sá að það átti bara að aukast um 1% á milli ára. Ég hef ekki fengið skýringar á því hvort markmiðin sem menn ætla að ná milli þessara ára séu allt í einu orðin metnaðarminni eða hvort þarna hafi prentvillupúkinn verið að verki.

Það er hins vegar ljóst að tækifæri okkar til þess að fara í orkuskipti eru gríðarleg með alla þessa endurnýjanlegu orku, alla þessa efnahagslegu hvata. Í stað þess að eyða 25–30 milljörðum í gjaldeyri, sem við borgum Norðmönnum eða Sádi-Aröbum eða öðrum olíuríkjum, að fá þessa peninga í okkar sjóði. Að mati okkar Framsóknarmanna er Landsvirkjun í eigu landsmanna og á að vera það áfram sem og mörg stærstu orkufyrirtækin í eigu sveitarfélaganna. Arðurinn af auðlindinni fer því beint til okkar með tvennum hætti, annars vegar með hagkvæmu rafmagni til eigendanna, til íbúanna, og ef við færum að nýta þessa orku enn frekar, til að mynda í samgöngum, myndi aukinn arður nýtast okkur íbúum þessa lands eftir sem áður. Ég er sammála því.

Ég er sannfærður um að við getum náð þessum markmiðum hraðar og þurfum að spýta í lófana, ekki bara vegna þess að við þurfum að ná einhverjum tölum á blaði út af loftslagsmarkmiðum heldur einfaldlega vegna þess að þetta er svo efnahagslega jákvætt fyrir Ísland. Ekki bara fyrir þjóðarbúið heldur fyrir einstaklingana sem þurfa að reka þessa bíla. Það er rétt að almenningssamgöngur geta hjálpað mikið til en það er líka þannig að ýmis fyrirtæki og atvinnugeirar í landinu þurfa að takast á við þetta. Þess vegna er svo gleðilegt að sjá að til að mynda sjávarútvegurinn er nú þegar búinn að ná þessu markmiði, að minnka útblástur um 46%, og árið er 2019 en ekki 2030.