fjármálaáætlun 2020--2024.
Forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir þessar hugleiðingar og spurningar. Það er rétt, eins og hv. þingmaður kom inn á, um frystinguna á þessum framlögum til jöfnunarsjóðs á árunum 2020 og 2021 og ég tek undir með hv. þingmanni að afkoma sveitarfélaganna gæti verið betri. Menn hafa horft til þess að hún hafi farið batnandi en í samanburði við þá uppgangstíma sem við höfum lifað hefði maður kannski getað vænst meira af því.
Það er engu að síður þannig að þegar við tölum um þennan rúman milljarð eru framlög jöfnunarsjóðsins yfir 20 milljarðar til sveitarfélaganna, svo að menn séu að tala um réttu upphæðirnar sem hefur aðeins skort á, en ekki hjá hv. þingmanni heldur almennt í umræðunni í dag, hef ég heyrt. Tekjustofnarnir? Jú, að nokkru leyti eru þeir fábrotnir. Þeir eru kannski aðallega af þrennum toga, annars vegar útsvar, hins vegar fasteignagjöld og svo jöfnunarsjóðurinn fyrst og fremst, og einhver önnur þjónustugjöld. Þar hafa menn verið að skoða t.d. frekari tekjur af fasteignagjöldum af raforkumannvirkjum.
En stóra vinnan er kannski einmitt um það hvernig við getum eflt sveitarfélögin. Þar er í gangi mjög góð vinna sem mun enda með því að ég kem með þingsályktunartillögu í haust um stefnu ríkisins í málefnum sveitarfélaga, annars vegar til fimm ára og hins vegar 15 ára, þar sem við horfum á að skilgreina sveitarfélag, hvort sem væri með tilliti til lágmarksíbúafjölda eða þá hvaða verkefni sveitarfélögin þyrftu að sinna. Auðvitað gæti þurft að taka tillit til einhverra landfræðilegra aðstæðna, langra vegalengda o.s.frv., eins og menn hafa svo sem séð í öðrum löndum.
En þetta er mjög spennandi vinna og verkefni, m.a. vegna þess að afkoman er ekki nægilega góð eins og hún er í dag.