fjármálaáætlun 2020--2024.
Virðulegur forseti. Við ræðum hér fjármálaáætlun til fimm ára. Þó svo að einstaka framkvæmdir í samgöngumálum séu hér nefndar er fjármálaáætlun ekki um þær heldur stóru tölurnar í fimm ára áætlun. Það breytir því ekki að það er ekkert að því að svara hv. þingmanni með það að hugmyndir eru til staðar um hvernig hægt sé að leysa úr þessum umferðarhnútum, m.a. á Reykjanesbrautinni í gegnum Hafnarfjörð. Þau plön munu vonandi birtast í endurskoðaðri samgönguáætlun sem kemur fyrir þingið í haust, fimm ára áætluninni, og öðrum áformum Vegagerðarinnar í samstarfi við sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu um það verkefni. Það sama gildir auðvitað um göng til Seyðisfjarðar og nauðsynlegar breytingar.
Þannig gæti ég talið hringinn í kringum landið, fullt af verkefnum sem eru mjög mikilvæg. En í fjármálaáætlun erum við fyrst og fremst að tala um stóra (Forseti hringir.) rammann. Þar er sem betur fer veruleg aukning í fjármunum til samgönguframkvæmda.