149. löggjafarþing — 84. fundur,  26. mars 2019.

fjármálaáætlun 2020--2024.

750. mál
[21:32]
Horfa

sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra (Kristján Þór Júlíusson) (S):

Virðulegi forseti. Ég ræði um þá málaflokka sem undir ráðuneyti mitt heyra; 12, 13 og 16. Stærstu þættirnir þar inni eru að sjálfsögðu landbúnaður og sjávarútvegur og fiskeldi er sömuleiðis að koma með öflugri hætti inn en áður hefur verið. Í fjárhæðum er þetta kannski ekki stærsti útgjaldapakkinn allur. Samtals er verið að verja til þessara mála rétt um 25 milljörðum á árinu 2019. Stærstu liðirnir í þeim útgjöldum sem heyra þar undir eru að sjálfsögðu búvörusamningar sem taka til sín um 16 milljarða af þeim 25 milljörðum. Sjávarútvegshlutinn er rétt um 6,7 milljarðar kr.

Umfangið aftur á móti í þessum tveimur atvinnugreinum, meginatvinnugreinum landsbyggðarinnar, er hins vegar umtalsvert. Heildarframleiðsluvirði landbúnaðarins lætur nærri að vera 62 milljarðar kr. og í landinu eru um 4.200 lögbýli. Þar af eru um 3.200 þeirra með framleiðslu í búskap, þ.e. framleiða kjöt, egg og mjólk. Garðyrkja, ferðaþjónusta og annar atvinnurekstur er síðan í verulegum mæli. Lætur nærri að um 1,6% af vinnuafli á vinnumarkaði sé í landbúnaðinum beint en afleidd störf eru um 7.000.

Helstu áskoranirnar í landbúnaðarhluta ráðuneytisins á komandi tímum, það sem næst er í tíma, er endurskoðun á búvörusamningunum. Einum þætti er lokið, þ.e. sauðfjársamningnum og eftir eru garðyrkjan, nautgriparæktin og síðan rammasamningur. Í öðru lagi vil ég nefna að full þörf er á því að styrkja stjórnsýslu landbúnaðarmála og í þriðja lagi er ráðgerð vinna við endurskoðun á úthlutun tollkvóta og líka að fara í gegnum tollverndina og skoða samkeppnisstöðu landbúnaðarins.

Ég vil einnig nefna að í bígerð er endurskoðun fyrirkomulags á áhættumati, vöktun á helstu áhættuþáttum matvælaöryggis og fleiri þættir eru tilteknir í áætluninni. Varðandi sjávarútveginn aftur á móti, er hann sömuleiðis nokkuð þungur í vigt í atvinnulífi landsins. Við erum að tala þar um að 4% af vinnuafli þjóðarinnar vinna við sjávarútveg, fiskvinnslu og fiskveiðar. Þessu tengjast að sjálfsögðu ótal greinar núna, tæknigeirinn er sérstaklega að koma mjög sterkur inn og er í rauninni í öflugri útflutningssókn. Heildarverðmætaframleiðslan hér innan lands lætur nærri að vera um 200 millj. kr. þótt það hafi dregist örlítið saman.

Um sjávarútveginn vil ég tiltaka að stærstu þættirnir og áherslumálin þar taka í sjálfu sér ekki miklum breytingum. Það lýtur að sjálfbærni og ábyrgri nýtingu lifandi auðlinda hafsins sem byggir á vísindalegri þekkingu. Og við sjáum þær áherslur í fjármálaáætluninni, þar er áhersla á að reyna að styrkja grunn að nýtingu auðlindanna í sessi. Stærsta verkefnið þar er sú tímamótasamþykkt sem Alþingi gerði varðandi byggingu nýs hafrannsóknaskips sem mun taka rannsóknagetu Hafrannsóknastofnunar áfram um mörg ár. Við gerum sömuleiðis ráð fyrir að endurskoða aflareglur, gera ýmsar rannsóknir og styrkja enn frekar getu stofnunarinnar til þeirra þátta.

Ég vil þó undir lok máls míns nefna það sem er nýjast á þessum vettvangi, þ.e. uppbygging nýrrar atvinnugreinar sem fiskeldið er. Þar liggja fyrir í tveimur lagafrumvörpum sem komin eru til atvinnuveganefndar, annars vegar endurskoðun á löggjöfinni fyrir fiskeldið og hins vegar varðandi gjaldtöku. Þar er mjög áríðandi að við gætum þess í hvívetna að byggja upp þá atvinnugrein á grundvelli bestu fáanlegrar þekkingar hverju sinni en þó hægt og örugglega. Því að þarna undir liggja mjög miklir hagsmunir með tilliti til þeirra verðmæta sem hægt er að framleiða á þann veg sem fiskeldisfyrirtækin leggja drög að.