149. löggjafarþing — 84. fundur,  26. mars 2019.

fjármálaáætlun 2020--2024.

750. mál
[21:38]
Horfa

Sigurður Páll Jónsson (M):

Hæstv. forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir framsögu hans. Ég ætla aðeins að tæpa á atriði úr sjávarútvegskaflanum. Það vekur athygli mína að í þeim doðrant sem fjármálaáætlunin er og telur um 500 blaðsíður eru aðeins níu blaðsíður um sjávarútveg og fiskeldi. Ástæðan fyrir því er sjálfsagt margvísleg og hefur sá sem hér stendur ekki sérstaka skoðun á því.

Þar er að finna stuttan kafla um framtíðarsýn og meginmarkmið og langar mig til að vitna aðeins í þann kafla, með leyfi forseta:

„Framtíðarsýn stjórnvalda er að sjávarútvegur og fiskeldisafurðir séu í fremstu röð á alþjóðlegum mörkuðum. Greinarnar byggist á sjálfbærri auðlindanýtingu og bestu vísindalegri þekkingu þannig að þær geti áfram staðið að nýsköpun og vöruþróun til að tryggja samkeppnishæfni og auka virði afurða.

Atvinnugreinarnar nýta lifandi náttúruauðlindir hafsins og huga þarf vel að áhrifum starfseminnar á vistkerfið. Meginmarkmið málefnasviðsins er að stjórn fiskveiða og fiskeldis sé sjálfbær og skilvirk og rekstrarumhverfi greinanna hagkvæmt, fyrirsjáanlegt og stuðli að aukinni verðmætasköpun. Einnig að stuðlað sé að hagkvæmum starfsskilyrðum og byggðafestu hinna dreifðu sjávarbyggða, …“

Nú hefur átt sér stað mikil samþjöppun í fjölda útgerða með aflaheimildir síðustu ár sem virðist halda áfram og langar mig að spyrja hæstv. sjávarútvegsráðherra: Eru einhverjar mótvægisaðgerðir í því sambandi, þ.e. vegna fækkunar útgerða með aflaheimildir? Megum við eiga von á einhverjum aðgerðum um framtíðarsýn, sem kannski er ekki að sjá í þessum texta?