149. löggjafarþing — 84. fundur,  26. mars 2019.

fjármálaáætlun 2020--2024.

750. mál
[21:40]
Horfa

sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra (Kristján Þór Júlíusson) (S):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrirspurnina. Ég held að efni í texta í þessu sambandi segi ekki allt sem segja þarf um mikilvægi eða innihaldið í þeim málaflokkum sem undir heyra, þó svo einungis níu blaðsíður af 500, eins og hv. þingmaður sagði, snúist um sjávarútveg og fiskeldi. Þá er þetta bara þeim mun meitlaðra en froðan sem sums staðar annars staðar er hægt að finna í ótal gögnum sem lögð eru fyrir þingið. Það er einfaldlega þannig að það er ekki háttur hvorki landbúnaðar né sjávarútvegs að hafa mörg orð um hlutina ef hægt er að koma þeim réttilega til skila með betri hætti. Það veit ég að hv. þingmaður þekkir mætavel, enda starfað við sjávarútveg lengi og er hokinn af reynslu í þeim efnum.

Varðandi það sem hv. þingmaður spyr um hvað varðar framtíðarsýn og annað, hvort einhverjar mótvægisaðgerðir séu gegn samþjöppun þá er því ekki til að dreifa í þessu plaggi. Sjávarútvegurinn hefur í rauninni starfað á þeim forsendum sem við þekkjum mætavel. Við erum með innbyggða þætti í fiskveiðistjórnarkerfinu sem ætlað er að vinna gegn þeirri byggðaröskun sem óhjákvæmilega fylgir tilflutningi aflaheimilda. Þar er um að ræða hina svokölluðu 5,3% potta.

Þar undir eru, ef ég man rétt, rúmlega 32.000 tonn í aflaheimildum sem er töluvert stór hluti fiskveiðiheimildanna. Þær hafa verið nýttar til að vinna gegn byggðaröskun, áhrifum samþjöppunar ef því er að skipta. Ég skal vera fyrstur manna til að viðurkenna að það er alveg kominn tími á að við leggjum með mjög ákveðnum hætti mat á það hvernig þetta fyrirkomulag, 5,3% pottarnir, hefur reynst í þessu sambandi. Ég held að við þurfum að gera úttekt á því.