fjármálaáætlun 2020--2024.
Hæstv. forseti. Ég þakka ráðherranum fyrir. Það var eiginlega þannig að ég var að tala um þennan stutta kafla af því að mín meining var sú að sjálfbærni greinarinnar segir eiginlega til um hvað þessi kafli er stuttur; greinin sér svolítið um sig sjálf.
Ráðherrann vitnaði í 5,3% sem eru notuð til að koma á móti rækjubátum, skel og ívilnun og öðru fleira. Síðan er pottur sem við köllum strandveiðipott sem verður þetta árið um 11.000 tonn. Af því að minnst er á byggðafestusjónarmið og annað slíkt og ráðherrann kom einmitt inn á það, þá er eiginlega sama spurningin í því sambandi, hvað ráðherrann sér fyrir sér í framtíðinni með byggðakvóta og annað slíkt.