fjármálaáætlun 2020--2024.
Virðulegi forseti. Já, ég held að það sé orðið tímabært, eins og ég gat um áðan, að leggja í vinnu við það að meta ábatann af því og hugsanlega breytingar á því kerfi félagslegs jöfnuðar, sem við höfum byggt upp í tengslum við fiskveiðistjórnarkerfi, eins og byggðapottunum, eða 5,3% pottinum, og sem honum er ætlað að sinna.
Við sjáum það t.d. á þeirri breytingu sem er að verða á línuívilnuninni, hversu illa hún er nýtt. Ég hef sjálfur séð og heyrt umræðu um það að menn hafa verulegar efasemdir um með hvaða hætti þessum almenna og sértæka byggðakvóta er beitt. Full ástæða er til að endurskoða það og við sjáum t.d. að breytingar hafa orðið á forsendum þess með hvaða hætti þessu er úthlutað. Það er því að ýmsu að hyggja og ég vænti þess að geta átt ágætissamstarf við hv. þingmann þegar kemur að því að þetta skuli endurskoðað.