149. löggjafarþing — 84. fundur,  26. mars 2019.

fjármálaáætlun 2020--2024.

750. mál
[21:45]
Horfa

Albertína Friðbjörg Elíasdóttir (Sf):

Herra forseti. Í áætluninni eru boðaðar þó nokkrar breytingar á stjórnsýslu landbúnaðarins, eins og hæstv. ráðherra kom inn á í framsögu sinni, og gert ráð fyrir að verkefni er varða m.a. framkvæmd búvörusamninga og fleiri fagleg verkefni á sviði landbúnaðar verði flutt frá Matvælastofnun til ráðuneytisins. Við fyrsta lestur hljómar þetta eins og skynsamleg tilfærsla en ég velti þó fyrir mér áhrifunum á rekstur MAST annars vegar og stjórnsýslu ráðuneytisins hins vegar, einkum í ljósi aðhaldskröfu þeirra sem sett er fram í áætluninni. Matvælastofnun hefur umfangsmikið hlutverk þegar kemur að landbúnaði og fiskeldi og er mikilvægt að stofnunin hafi nægilega burði til að sinna því hlutverki. Ég óttast að svo sé ekki og með aukinni aðhaldskröfu verði enn frekar dregið saman.

Mig langar því að spyrja hæstv. ráðherra hvernig hann sjái fyrir sér að staða stofnunarinnar verði miðað við þær forsendur sem hér eru teiknaðar upp og sömuleiðis hvernig hann sjái fyrir sér að stjórnsýsla ráðuneytisins muni breytast. Mun þessi breyting til að mynda kalla á fjölgun starfa innan ráðuneytisins?

Lögð verður áhersla á nýliðun og stuðning við þróun og nýsköpun starfshátta í þeim tilgangi að gera landbúnað eftirsóknarverðan starfsvettvang, sem er hið besta mál. En mig langar einnig að spyrja hæstv. ráðherra hvernig hann sjái fyrir sér að vinna að því markmiði, enda fann ég engin verkefni sem tengdust því og reyndar ekki mælikvarða heldur. Það eina sem ég fann sem mögulega mætti tengja við er það verkefni að koma á fót öflugum sjóði sem styrkir nýsköpunar- og þróunarverkefni í matvælaframleiðslu, en í texta kemur fram að stefnt sé að sameiningu m.a. Framleiðnisjóðs landbúnaðarins og AVS-rannsóknasjóðs í sjávarútvegi. Nú er notað orðalagið „m.a.“. Er verið að horfa til fleiri sjóða sem gætu sameinast í slíkum sjóði?

Eins spyr ég ráðherra hvort hann telji í alvöru ástæðu til að sameining þessara sjóða taki svo langan tíma, en gert er ráð fyrir að það gerist á tímabilinu 2019–2023.