149. löggjafarþing — 84. fundur,  26. mars 2019.

fjármálaáætlun 2020--2024.

750. mál
[21:47]
Horfa

sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra (Kristján Þór Júlíusson) (S):

Virðulegi forseti. Ég þakka þingmanninum fyrirspurnina. Varðandi það sem nefnt er um breytingar á stjórnsýslu landbúnaðarmála og snýr að því sem kallað er Búnaðarstofa er því til að svara að því verkefni var sinnt af Bændasamtökunum fram til ársloka 2015. Þá var það fært þaðan til Matvælastofnunar og þar hefur þetta verið 2016, 2017, 2018 og fram til þessa tíma. Þetta er stjórnsýslueining sem fellur ekki að kjarnastarfsemi Matvælastofnunar. Kjarnastarfsemi Matvælastofnunar snýr fyrst og fremst að matvælaeftirliti og síðan dýraheilbrigði og aðbúnaði dýraeftirlits, að því sem snýr að landbúnaði. Svo eru aðrir þættir eins og fiskeldi þar inni.

Áhrifin á rekstur Matvælastofnunar eiga ekki að vera önnur en þau hin sömu sem kæmu þá til baka þegar Búnaðarstofa færi þangað inn. Það er sama eining og sömu fjárheimildir færðar til baka. Þetta er liður í því að styrkja stjórnsýslu landbúnaðarmála í sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu, sem er ekki vanþörf á að mínu mati. Það eru ágætissamlegðaráhrif af því að færa Búnaðarstofu þarna inn. Þarna er um að ræða fimm til sex störf. Ég hef enga ástæðu til að ætla að sú tiltekna aðgerð eigi að verða til þess að það þurfi að vera eitthvert sérstakt aðhald um Matvælastofnun, því að hún fékk á sínum tíma fjárheimildir með því.

Varðandi það sem snýr að sameiningu sjóða og hv. þingmaður nefndi þá eru hugmyndir sem snúa að því að umbreyta sjóðakerfi sem hvort tveggja snýr að landbúnaðar- og sjávarútvegsmálum, stokka það upp. Þetta hefur verið í því fari í langan tíma. Það tekur tíma. Ég get alveg deilt þeirri skoðun með hv. þingmanni að það er of langt að ætla að þeirri skoðun og athugun verði ekki lokið fyrr en árið 2023. Það er fulllangt. Ég tek heils hugar undir það.