fjármálaáætlun 2020--2024.
Herra forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svarið. Það á auðvitað að hrósa því sem vel er gert og langar mig að nefna sérstaklega þann kynjavinkil sem dreginn er fram hvað varðar landbúnaðinn, auk þess að fagna því að móta eigi hvata og stuðning til þess að draga úr umhverfisáhrifum matvælaframleiðslu og kolefnisjafna landbúnaðinn, nokkuð sem bændur hafa sjálfir verið að vinna að og kalla eftir. En það kemur hins vegar ekki nægilega skýrt fram hvort hér sé eingöngu verið að tala um sauðfjárbændur eða hvort horft sé á alla bændastéttina eins og hún leggur sig og væri gott ef ráðherra gæti skýrt það.
Ef litið er til þróunar í búvöruframleiðslu á síðustu fimm árum er staðreyndin sú að framleiðsla á helstu kjöttegundum á hvern íbúa hefur aukist lítillega eða staðið í stað. Heilt yfir hefur hins vegar uppskera grænmetis og korns á hvern íbúa heldur dregist saman, sem ég tel vera áhyggjuefni. Telur ráðherra ekki vera tækifæri til þess í tengslum við loftslagsmálin að horfa til aukinnar framleiðslu á grænmeti og ávöxtum og nýta þar með t.d. jarðvarma, sem við eigum nóg af?