fjármálaáætlun 2020--2024.
Virðulegi forseti. Varðandi kolefnisjöfnunina þá er komið á samstarfsverkefni við sauðfjárbændur. Það er í mínum huga ákveðið frumkvöðlaverkefni. Sauðfjárbændur sýndu því mjög mikinn áhuga í tengslum við endurskoðun á sauðfjárhluta búvörusamninganna. Við tókum því fagnandi og sömuleiðis ríkisstjórnin þegar hún setti upp aðgerðaáætlun í loftslagsmálum. Því verkefni var snúið þar inn.
Það er óumdeilt að við eigum eftir að þróa vinnulag með þessum hætti. En það er sömuleiðis óumdeilt að þetta þarf að færast yfir aðrar greinar landbúnaðarins, ekki eingöngu sauðfjárræktina. En „frumkvöðlarétturinn“ er þar og við eigum bara að ná tökum á því sem við erum að fara út í með sauðfjárbændum og láta þá njóta þess í fyrstunni hvernig þetta verður gert. Svo heimfærum við reynsluna (Forseti hringir.) yfir á aðra þætti landbúnaðar.
Og jú, ég tek undir það með hv. þingmanni að við eigum að skoða möguleika á því að geta aukið grænmetisframleiðslu.