149. löggjafarþing — 84. fundur,  26. mars 2019.

fjármálaáætlun 2020--2024.

750. mál
[21:52]
Horfa

Kolbeinn Óttarsson Proppé (Vg):

Forseti. Mig langar í fyrri ræðu minni að eiga orðastað við hæstv. ráðherra um tvennt er lýtur að sjávarútvegi og fiskeldi. Annað hefur þó verið minnst á hér áður, þ.e. það sem lýtur að byggðafestuáhrifum. Ég verð að segja að ég var mjög ánægður með að sjá þessi markmið í kaflanum um sjávarútveg þar sem annað markmiðið, tölusett, er, með leyfi forseta:

„Styrkja byggðafestuáhrif af aflaheimildum sem stjórnvöld úthluta. Skoðað verði hvernig þær aflaheimildir sem ríkið fer með forræði yfir, 5,3%, stuðli sem best að byggðafestu og nýliðun.“

Hæstv. ráðherra kom aðeins inn á þetta áðan þegar hann átti orðastað við hv. þm. Sigurð Pál Jónsson og boðaði hér endurskoðun á þessu, sem væri nú gaman að heyra betur í hverju væri fólgin því að þar eru náttúrlega ýmsir möguleikar.

Hæstv. ráðherra talaði um byggðakvótann svokallaða. Er ráðherrann að horfa meira til þess kvóta sem Byggðastofnun hefur haft yfir að ráða? Hverjar eru breytingarnar? Eigum við kannski að hækka þessi 5,3% og stuðla þannig að enn meiri byggðafestu með enn meiri aflaheimildum? Og ýmislegt fleira væri hægt að ræða ef tíminn væri meiri. Við munum án efa eiga orðastað um þetta aftur.

Hitt snýr að gjaldtöku í fiskeldi sem við ræddum hér á dögunum. Þar eru boðaðar nýjar leiðir í gjaldtöku sem munu væntanlega, þegar komið verður á til fulls, þýða umtalsvert meiri tekjur í ríkissjóð en við höfum séð hingað til í þessari atvinnugrein — beinar tekjur.

Mig langar að spyrja hæstv. ráðherra hver hugsunin sé og hvort það komi eitthvað inn í þessa fjármálaáætlun eða hvernig hugsum ráðherrans sé hvað það varðar, hvernig því gjaldi verði svo ráðstafað.