fjármálaáætlun 2020--2024.
Virðulegi forseti. Það sem liggur undir í grunninn er að nýta bara fyrst og fremst þá þekkingu, færni og getu þeirra fjölmörgu einstaklinga sem innan landbúnaðargeirans vinna til þess að gera enn betur. Það er í rauninni grunnurinn að því sem hér er lagt til.
Og jafnframt þá að í því starfi sem fram undan er nýtum við þær áherslur sem ríkisstjórnin hefur verið að teikna upp, sérstaklega t.d. á því sviði sem hv. þingmaður nefnir hér, kolefnisjöfnun landbúnaðarins. Þar hefur verið í mínum huga stærsta verkefnið og við þurfum einhvern veginn að átta okkur á hvernig við ætlum að halda utan um þau skref sem verið er að taka og hvernig við ætlum að mæla þann árangur sem við erum að ná.
Það hafa allir sömu sýnina á því að við þurfum að draga úr losuninni, en við höfum kannski ekki alveg nægilega góð tæki til að mæla með hvaða hætti við ætlum að ná þeim skrefum sem við viljum ná. Hugsun Rannsóknarmiðstöðvar landbúnaðarins og vinna hefur miðað að því að reyna að setja upp slíkt kerfi (Forseti hringir.) og byrja þá á sauðfjárræktinni sem við getum síðan útfært yfir á aðrar greinar landbúnaðar.