fjármálaáætlun 2020--2024.
Virðulegur forseti. Við ræðum hér fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar fyrir árin 2020–2024. Það er dagljóst að mikið vantar upp á í áætlunina og ljóst að mikilvæg verkefni munu áfram þurfa að sitja á hakanum. Má þar nefna vistkerfisrannsóknir á tímum umhverfisbreytinga. Rannsóknir á miðsjávarfiskum sem gætu, ef vel er að verki staðið, orðið mikilvæg auðlind á komandi árum. Þá má nefna þörfina á auknum rannsóknum til að bæta skilning á hegðun loðnu og ástæðum þess að stofninn fer minnkandi.
Það er gríðarlega mikilvægt að Hafrannsóknastofnun hafi fjármagn til að vakta nytjastofna eins og loðnu, en til að tryggja slíkt þyrfti um 200 milljónir á ársgrundvelli. Núverandi ríkisstjórn hefur því miður ekki sett það í forgang að koma til móts við þessa mikilvægu undirstofnun sína. Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi hafa m.a. bent á að með aðkomu sinni að vöktun 2017 hafi tekjur þjóðarbúsins vegna aukningar loðnukvóta verið um 17 milljarðar. Það er ólíðandi að starfsemi Hafrannsóknastofnunar þurfi að reiða sig á rekstraraðila útgerðarinnar varðandi fjármagn.
Jafnvel þó að við séum að tala um smáaura í stóra samhenginu er ljóst að það er bagalegt fyrir Hafrannsóknastofnun að þurfa að stóla á að útgerðirnar leggi til skip og/eða fjármagn til slíkra verkefna þegar sjóðir stofnunarinnar til þess háttar mála tæmast. Því langar mig að beina spurningu til hæstv. sjávarútvegsráðherra: Hvernig hyggst hæstv. ráðherra bregðast við þeim veruleika sem blasir við Hafró þegar ljóst er að svo ríkir almannahagsmunir eru undir?