fjármálaáætlun 2020--2024.
Virðulegi forseti. Þá fer ég upp í sveit. Framtíðarsýn stjórnvalda er að á Íslandi sé stunduð heilnæm og sjálfbær matvælaframleiðsla í sveitum landsins. Forsenda þess er að jafnvægi ríki milli framleiðslu, skilvirks eftirlits og nýsköpunar. Til að ná fram þeim markmiðum þarf að virkja sterka matvælastefnu. Hún þarf að endurspegla sérstöðu landsins, uppbyggingu matvælaframleiðslu hér til sjálfbærrar þróunar, tryggja gæði og síðast en ekki síst gæta hagsmuna neytenda.
Í fjármálaáætlun er talað um tækifæri til úrbóta og stuðning við nýsköpun og vöruþróun, að sameina þurfi Framleiðslusjóð landbúnaðarins og rannsóknasjóð í sjávarútvegi. Fjárfesting í menntun og rannsóknum er fjárfesting til framtíðar. Áskorun framtíðarlandbúnaðarins er nýsköpun og umhverfis- og loftslagsmál og grundvöllur þess að landbúnaður nái að vaxa hér á landi. Þróun og efling þeirra þátta byggja á öflugum stuðningi við rannsóknir. Því vil ég spyrja hæstv. ráðherra hvernig fjármálaáætlun til næstu fimm ára styðji við rannsóknir í landbúnaði og hvernig hann sjái það efla þær rannsóknir.