149. löggjafarþing — 84. fundur,  26. mars 2019.

fjármálaáætlun 2020--2024.

750. mál
[22:12]
Horfa

sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra (Kristján Þór Júlíusson) (S):

Virðulegi forseti. Það er hárrétt að framtíð okkar í þeim efnum liggur í því að við mörkum okkur skýra stefnu til lengri tíma og sú vinna er hafin. Undirbúningur að gerð matvælastefnu er komin úr startholunum. Við höfum ákveðið innan ríkisstjórnarinnar að taka þá vinnu upp á stig ráðherranefndar og það verður gert á næstunni, sem er grundvallaratriði.

Þegar við horfum á landbúnaðinn í heild sinni hef ég haft af honum þá reynslu, m.a. af setu minni í menntamálaráðuneytinu, að rannsóknarumhverfi landbúnaðarins hér á landi sé ekki nægilega sterkt. Þannig háttar til að Háskólinn á Hvanneyri er undir menntamálaráðuneytinu en það situr eftir einhver fjármögnun inni í landbúnaðarráðuneytinu. (Forseti hringir.) Ég man í svipinn ekki hvaða fjárhæð þetta er, um rúmar 100 millj. kr. sem því miður hafa verið að skerðast. Þess vegna eigum við að geta gert betur, en í fjármálaáætlun eins og hún liggur fyrir (Forseti hringir.) er ekki gert ráð fyrir stórum breytingum í þá veru (Forseti hringir.) í neinum texta.