149. löggjafarþing — 84. fundur,  26. mars 2019.

fjármálaáætlun 2020--2024.

750. mál
[22:16]
Horfa

sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra (Kristján Þór Júlíusson) (S):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrirspurnina. Vilji minn stendur til þess, og það er m.a. kynnt í greinargerðinni með því sem fór á samráðsgáttina og snýr að svokölluðu kjötmáli, varðandi frystiskyldu og fleira. Ein af hugmyndunum sem tengist því er að reyna að styðja íslenska matvælaframleiðslu með því að stokka upp sjóðakerfið.

Ég sé alveg færi til að draga aukna fjármuni í tengslum við þá uppstokkun inn í þessa nýsköpun, sem ég skynja sömuleiðis mikinn vilja innan greinarinnar til að reyna að koma á. Við erum ekki með sérmerkt fjármagn í það en til þess þurfum við bæði að fara inn í sjóðakerfi sjávarútvegsins, landbúnaðarins og að hluta til inn í sjóðakerfi sem heyrir undir iðnaðarráðherra. Það er ég byrjaður að ræða. Þannig að tvímælalaust tel ég mikil færi þarna.

Varðandi losunarmálin og kolefnisjöfnunina er það rétt að landbúnaðurinn er mjög stór í því. Það kann vel að vera að þetta séu metnaðarlítil áform en ég hef sagt það sjálfur í umræðunni um þessar áherslur að við erum sömuleiðis að setja töluverða fjármuni inn í þetta á landsvísu og heyrir það undir málefnasvið umhverfis- og auðlindaráðherra. En við erum líka illa í stakk búin til að taka ákveðin skref og segja: Þetta ætlum við að gera og þetta mun skila okkur þessum árangri.

Mér líður t.d. þannig þegar ég er að ræða um þær greinar sem undir mig heyra að við eigum svo erfitt með að mæla árangurinn af þeim tilteknu aðgerðum sem verið er að ræða í þessu sambandi. Ég var að reyna að nefna hérna áðan að við erum að gera tilraun til að byggja þetta upp. (Forseti hringir.) Vissulega megum við gera þetta betur en ég tel að við þurfum betri tæki til að geta sett okkur metnaðarfyllri markmið.