149. löggjafarþing — 84. fundur,  26. mars 2019.

fjármálaáætlun 2020--2024.

750. mál
[22:18]
Horfa

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir (V):

Herra forseti. Ég þakka svarið og segi þá bara: Það er ekkert annað í boði en að styðja ráðherra í því. Ég held að þarna felist tækifæri, m.a. fyrir landbúnaðinn.

Í fjármálaáætluninni segir líka: „Samkeppnishæf rekstrarskilyrði“. Að markmiðið sé að setja sér viðmið varðandi þau rekstrarskilyrði. Hér skiptir náttúrlega miklu máli að ráðherra tali skýrt. Á fundi atvinnuveganefndar í morgun voru þessi mál til umræðu. Ég er alveg sannfærð um að leiðin til þess að styrkja landbúnaðinn liggur í gegnum frelsi og frjálsa samkeppni. Neytandinn mun vera í liði með framleiðendum, þ.e. bændum.

Þess vegna skiptir máli hvort við sjáum ákveðna endurskoðun á umhverfi afurðastöðva. Ég spyr hvort ráðherra sé ekki sammála mér í því að þessi grein öll á að vera undir umhverfi samkeppnislaga og að það á ekki að veita undanþágur í þessu, eins og m.a. fyrirliggjandi frumvarp af hálfu Framsóknarmanna segir til um, heldur miklu frekar (Forseti hringir.) að landbúnaðurinn lagi sig að almennum reglum og fái þá stuðning til þess.