149. löggjafarþing — 84. fundur,  26. mars 2019.

fjármálaáætlun 2020--2024.

750. mál
[22:33]
Horfa

Birgir Þórarinsson (M):

Herra forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra svarið. Það kom greinilega fram að hann hefur ekki stórar áhyggjur af þessum innflutningi sem nú blasir við landbúnaðinum. Það kemur mér svolítið á óvart vegna þess að hann hefur sjálfur talað fyrir mótvægisaðgerðum, sem þýðir væntanlega að hann hafi einhverjar áhyggjur af málinu. En Bændasamtökin hafa einmitt ályktað á þann veg um hráakjötsmálið eða afnám frystiskyldu, við skulum orða það frekar þannig, hæstv. ráðherra, að hér sé um uppgjöf stjórnvalda að ræða gagnvart Evrópusambandinu eða þeim dómi sem fallið hefur hjá EFTA-dómstólnum. Það að ekki skuli vera minnst neitt á þetta (Forseti hringir.) í fjármálaáætluninni sýnir mér að stjórnvöld hafa ekki miklar áhyggjur af þessu máli og það er miður. Þar verð ég að ganga í lið með bændum (Forseti hringir.) og segja að ég tel það vera uppgjöf.