149. löggjafarþing — 84. fundur,  26. mars 2019.

fjármálaáætlun 2020--2024.

750. mál
[22:34]
Horfa

sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra (Kristján Þór Júlíusson) (S):

Virðulegi forseti. Það er engin uppgjöf í okkar huga í þessu máli. Ég skal alveg viðurkenna það að ég hef ekki stórar áhyggjur af þeim mun að flytja hrátt kjöt inn frosið eða flytja hrátt kjöt inn ófrosið. Ég hef ekki áhyggjur af því að sú breyting muni leiða hörmungar yfir íslenskan landbúnað. Okkar færustu vísindamenn segja að það sé enginn munur á þessum tveimur aðferðum varðandi t.d. sýklalyfjaónæmi eða annað því um líkt. Áhyggjur okkar stafa af því sem leiðir af innflutningi á fersku alifuglakjöti og við erum að setja upp varnir við því. Ég mun fara yfir það allt saman þegar ég fæ heimild þingsins til þess að mæla fyrir málinu sem ég þarf að flytja. Þar mun þetta allt verða mjög ljóst og skýrt, tímasetningar klárar og ég vænti þess og treysti því að hv. þingmaður muni fagna því með mér þegar ég kynni þær aðgerðir fyrir honum og taka undir þær og lýsa stuðningi við að það þurfi að koma þeim á.