fjármálaáætlun 2020--2024.
Virðulegi forseti. Ég þakka fyrirspurnina. Það er ekki skrýtið þó að hv. þingmaður sjái þessa ekki stað í fjármálaáætluninni því að frumvörpin sem eiga að standa undir því að stærstum hluta eru ekki orðin að lögum og t.d. í frumvarpinu sem er komið fram um breytingar á lögum um fiskeldi er rakið nákvæmlega að fjármagn fyrir auknum kostnaði, m.a. Matvælastofnunar, liggi fyrir. Ég man ekki í svipinn fjárhæðina í þeim efnum.
Þar er síðan verið að setja inn hækkun á gjaldi í Umhverfissjóð sjókvíaeldis úr 100 milljónum í 200 milljónir sem fyrirtækjunum er ætlað að standa undir og þau að greiða og því er ætlað í rannsóknir, vöktun og fleira því um líkt. Sömuleiðis er frumvarpið um gjaldtökuna þannig sniðið og rökstutt með þeim hætti að það gjald sem þar til kemur verður orðið að verulegum fjárhæðum þegar framleiðslan nær þeim hæðum sem hv. þingmaður nefndi og þá gerir hún miklu meira en að standa undir beinum kostnaði við eftirlit og vöktun.
Ég leyfi mér að fullyrða að áhyggjur hv. þingmanns af fjármögnuninni þegar kemur að fjárlagagerð fyrir komandi ár, vegna þess að þetta er fjármálaáætlun, eru óþarfar að því gefnu að þingið taki þessi frumvörp og klári þau. Ég hef ekki neinar áhyggjur af fjármögnun þeirra grunnrannsókna og eftirlits sem kallað er eftir í því sambandi.