fjármálaáætlun 2020--2024.
Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svörin. Mér finnst svolítið merkilegt að þegar ég hef verið blaða í þessari áætlun, og eins af því að hlusta á umræðurnar í dag, hef ég stundum fengið á tilfinninguna að þetta sé dálítið eins og þeir veðurspámenn sleikja á sér puttann og rétta hann upp í vindinn, þeir eru að reyna að átta sig á því hvernig vindar munu blása.
Ég skil vel að ríkisstjórnin geti ekki komið með fjármálaáætlun sem gerir ráð fyrir því nákvæmlega hvernig t.d. aflabrögðum verður háttað, hversu margir ferðamenn koma, hvaða fyrirtæki fara á hausinn o.s.frv., en nú heyri ég að ríkisstjórnin geti heldur ekki gert ráð fyrir því hvaða frumvörp hún muni hugsanlega leggja fram í náinni framtíð.
Staðreyndin er sú að í tekjuáætlun ríkir algjör óvissa um tekjur og gjöld vegna fiskeldis. Í áætluninni er líka talað um að búið sé að setja stefnu um þróun og starfsumhverfi fiskeldis. Hins vegar þegar að var gáð var þá stefnu hvergi að finna, ekki einu sinni hjá upplýsingaskrifstofu þingsins sem veit þó margt.