149. löggjafarþing — 84. fundur,  26. mars 2019.

fjármálaáætlun 2020--2024.

750. mál
[22:40]
Horfa

sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra (Kristján Þór Júlíusson) (S):

Virðulegi forseti. Það er þetta með veðurspámennina. Þeir eru þó að mörgu leyti skárri en veðurfræðingarnir sem ljúga víst. Veðurspámennirnir nota náttúrutalent, eins og sagt er.

Það er ekki rétt að ríkisstjórnin hafi ekki getu eða vilja eða hafi ekki lagt fram frumvarp í því efni og ætli ekki að gera í náinni framtíð. Það er ekki rétt. Þau eru bæði komin fram, atvinnuveganefnd er að vinna með þau bæði og ég vænti þess að þau verði gerð að lögum í vor. Þá mun áhyggjum okkar hv. þingmanns stórum létt og hann getur ferðast vestur á firði og notið þessa að ganga þar um eyðigrundir sem ekkert bíður annað en blómstrandi byggð og öflugt mannlíf. Ég vænti þess að svo verði og treysti því raunar að atvinnuveganefndin afgreiði þau grundvallarmál þannig að við léttum áhyggjum af bæði ættingjum hans vestra og af umhverfissinnum, sem hafa fóstrað þetta mál af miklum móð og ég tek hattinn ofan fyrir þeim.