149. löggjafarþing — 84. fundur,  26. mars 2019.

fjármálaáætlun 2020--2024.

750. mál
[22:46]
Horfa

sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra (Kristján Þór Júlíusson) (S):

Virðulegi forseti. Já, að mörgu leyti tel ég að svo sé. Við höfum t.d. að mörgu leyti ágætissamstarf við umhverfisráðuneytið varðandi ákveðna þætti í hafrannsóknum. Ég sé einfaldlega fram á að það muni bara aukast eftir því sem fram líða stundir, t.d. varðandi mál sem snúa að súrnun hafsins og fleiri þáttum.

En ég ítreka það sem ég hef áður sagt hér, við gerum ráð fyrir, t.d. þegar menn ræða um hafrannsóknir og fiskeldi saman, umtalsvert mikilli aukningu í framlög til rannsókna á því sviði, sérstaklega fiskeldi.

Í öðru frumvarpi sem ég mælti fyrir hér fyrir ekkert löngu síðan er gert ráð fyrir hækkun á rannsóknafé Umhverfissjóðs sjókvíaeldis, sem fer mestan part til Hafrannsóknastofnunar, úr 100 milljónum í rúmar 200 milljónir. Gjaldtakan í fiskeldinu fer fyrst og fremst í eftirlit og vöktun og síðan rannsóknir. Hún mun á fyrsta ári (Forseti hringir.) skila á annað hundrað millj. kr.

Það er að minni hyggju ákveðinn vöxtur í þeim efnum þó að aldrei sé fullnóg, eins og við ræddum í fyrri samskiptum okkar hér í kvöld.