149. löggjafarþing — 85. fundur,  27. mars 2019.

fjármálaáætlun 2020--2024.

750. mál
[20:52]
Horfa

Forseti (Bryndís Haraldsdóttir):

Þá höfum við lokið umræðu um málaflokka dómsmálaráðherra í fjármálaáætlun og tökum fyrir málaflokka sem heyra undir umhverfis- og auðlindaráðherra. Við áætluðum eina og hálfa klukkustund í umræðu við ráðherrann. Ráðherrann hefur fimm mínútur í upphafi til að fjalla um málaflokka sína. Síðan geta þingmenn beint fyrirspurn til ráðherrans, einn frá hverjum stjórnarflokki, á hvern ráðherra, að undanskildum þingmönnum úr flokki viðkomandi ráðherra og tveir frá hverjum stjórnarandstöðuflokki. Þingmenn og ráðherrar fá tvær mínútur í fyrra sinn og eina mínútu í seinna sinn í báðum umferðum. Andsvör verða ekki leyfð.