fyrirvarar við þriðja orkupakkann.
Forseti. Ríkisstjórnin hefur, að mér skilst, samþykkt þingsályktunartillögu og frumvörp um svokallaðan þriðja orkupakka Evrópusambandsins. Getur hæstv. forsætisráðherra staðfest að mælt verði fyrir málinu á þriðjudag eftir viku? Er hæstv. forsætisráðherra sannfærður um að þeir fyrirvarar sem hafa verið boðaðir af hálfu ríkisstjórnarinnar eða ráðherra um þetta mál muni halda? Er hæstv. forsætisráðherra sannfærður um að fyrirvararnir haldi? Ef vafi léki á því að fyrirvararnir myndu halda væri hæstv. forsætisráðherra þá engu að síður hlynntur þessum frumvörpum og þingsályktunartillögu?