fyrirvarar við þriðja orkupakkann.
Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrirspurnina. Fyrst spyr hann mig um dagskrá þingsins sem ég hef svo sem ekki yfirumsjón yfir en mér er sagt af forseta þingsins að mælt verði fyrir þessu máli í næstu viku. Ég er ekki með nákvæmar tímasetningar á því en ég get staðfest að það stendur til. Því hefur verið dreift á þingi ef ég heyrði rétt í máli forseta þingsins áðan.
Um hvað snýst þetta mál? Jú, það snýst um innleiðingu þriðja orkupakkans af hálfu Evrópusambandsins og þar hafa verið settir ákveðnir fyrirvarar, eins og hv. þingmaður nefnir, hvað varðar þá þætti þeirrar tilskipunar sem lúta að tengingu raforkukerfa milli landa, þ.e. fyrirvarinn snýst um það að á meðan Ísland er ekki tengt við raforkukerfi Evrópusambandsins eiga ekki við þau ákvæði reglugerðarinnar sem snúast um slíkar tengingar milli landa. Þetta er m.a. undirstrikað í sameiginlegri yfirlýsingu utanríkisráðherra og fulltrúa framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins. Þetta er önnur af þeim leiðum sem lögð er til í áliti Stefáns Más Stefánssonar lagaprófessors sem hefur skrifað mikla greinargerð um málið. Það er fullur skilningur á því að þessi ákvæði þriðja orkupakkans eigi ekki við hér á landi nema ráðist verði í lagningu sæstrengs. Sömuleiðis liggur fyrir að ekki verður ráðist í lagningu sæstrengs nema meiri hluti Alþingis ákveði að svo sé gert. Fyrir liggur að hæstv. ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra mun mæla fyrir tillögu um það sömuleiðis í tengslum við framlagningu þessa máls.