fyrirvarar við þriðja orkupakkann.
Herra forseti. Þær tvær leiðir sem nefndar eru í greinargerð Stefáns Más Stefánssonar eru báðar reifaðar. Báðar eru þær vandkvæðum bundnar. Sú fyrri sem hv. þingmaður vísar í hefði verið fýsilegur valkostur ef ríkisstjórnin á árunum 2013–2016 hefði fylgst með þessu máli því að þá var þetta mál til umfjöllunar í sameiginlegu EES-nefndinni. Þá var þetta mál til umfjöllunar í utanríkismálanefnd. Þá var þetta mál til umfjöllunar í atvinnuveganefnd og engir fyrirvarar voru reistir við þetta á þessum tíma. (SDG: Svara spurningunni.)
Þarna hefði verið æskilegt að hv. þingmaður, (SDG: Svara.) sem þá var í lykilhlutverki til að hafa áhrif á stöðu málsins, hefði reist sitt flagg, (Gripið fram í.) á þeim tíma. Það er heppilegt að koma núna og hafa áhyggjur. Ég vil segja að af minni hálfu verður að vera algjörlega skýrt — og ég tel að sú leið sem hæstv. utanríkisráðherra leggur til uppfylli það — að Íslendingar hafi áfram forræði yfir orkuauðlindum sínum, hvort hér verði lagður sæstrengur eða ekki, (Forseti hringir.) það verði áfram algerlega skýrt á forræði íslenskra stjórnvalda.