149. löggjafarþing — 87. fundur,  1. apr. 2019.

viðbrögð ríkisstjórnarinnar við gjaldþroti WOW air.

[15:21]
Horfa

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir (V):

Virðulegi forseti. Ég ætla ekki að gera lítið úr því að koma fólki til síns heima, en heimafólkið gleymdist í staðinn. Planið liggur ekki fyrir enn þá. Hvenær kemur planið fram? Hvenær verður hægt að svara fólkinu sem nú er atvinnulaust hversu lengi og hversu hratt verður hægt að borga því út í gegnum Ábyrgðasjóð launa? Við erum einfaldlega að upplifa það að ríkisstjórnin hefur enn og aftur í stórum og mikilvægum málum, eins og í Brexit, ekkert plan; ekkert plan ef það verður hart Brexit. Hvaða plan var til þegar ríkið tapaði málinu vegna Landsréttar fyrir Mannréttindadómstólnum? Ekkert plan, ekkert annað en að ríkisstjórnarflokkarnir fóru í að tala Mannréttindadómstól Evrópu niður. Svo komum við að þessu máli sem ríkisstjórnin, að eigin sögn, er búin að fylgjast með í tíu mánuði og það er engin viðbragðsáætlun.

Ég vil spyrja hæstv. forsætisráðherra: Hversu marga fundi hélt forsætisráðherra með sveitarstjórnarfólki á Suðurnesjum áður en til gjaldþrots kom og hvenær fær fólk raunverulega svör? Auðvitað vill þingheimur heyra svörin en hvenær fær fólk á Suðurnesjunum, þau sem eru atvinnulaus núna vegna WOW, skýr svör um líf sitt og tilveru?