viðbrögð ríkisstjórnarinnar við gjaldþroti WOW air.
Herra forseti. Ég náði ekki að koma því að hér áðan en 150 manns hafa misst atvinnu á Suðurnesjum vegna þess máls og 750 á höfuðborgarsvæðinu svo að við höldum því til haga af því að hv. þingmaður er þingmaður þess svæðis eins og sú sem hér stendur. Það er auðvitað mikilvægt að huga að stóru myndinni í þessum efnum. Ég átta mig alveg á því að stjórnarandstaðan hefur ákveðið að sammælast um einhvern frasa um að ríkisstjórnin hafi ekki verið viðbúin. Ég hef greint þá tilhneigingu í málflutningi stjórnarandstöðunnar og mér finnst hann ekkert sérstaklega merkilegur í ljósi þess að það sem við höfum lagt hér á borð, hvort sem er í fjármálaáætluninni þar sem við erum einmitt að grípa til aðgerða til að tryggja atvinnustig, hvort sem er í félagslegum aðgerðum þegar kemur að atvinnuleysisbótum og greiðslum úr Ábyrgðasjóði launa, sem ég man ekki eftir að stjórnarandstaðan hafi lagt til, enda var það bara gert hér af ríkisstjórninni. Ég man ekki eftir tillögum í því. Allt snýst þetta um að mæta kólnun í hagkerfinu. Það er það sem við erum að gera og stóra viðfangsefnið er að tryggja að fólk verði ekki atvinnulaust langtímum saman heldur ýmist finni sér önnur störf, m.a. í gegnum opinbera fjárfestingu, eða að það leiti sér nýrrar menntunar sem sömuleiðis er í undirbúningi.