viðbrögð við auknu atvinnuleysi.
Herra forseti. Það er mjög brýnt að vinna fumlaust og ákveðið að lausnum fyrir fólk sem misst hefur vinnuna við fall WOW. Þau sem þegar hafa misst vinnuna eru flest í fjárhagsvanda og þarfnast aðstoðar í þeim efnum og sérstaklega er mikilvægt að gætt sé að börnum atvinnulausra og andlegri líðan fólksins.
Bein áhrif, sem strax er farið að gæta, munu magnast vegna starfa sem tapast í Flugstöð Leifs Eiríkssonar. Gert er ráð fyrir að um 3.000 manns missi vinnuna á næstu vikum og mánuðum þar. Sum þeirra missa heimili sín um leið vegna þess að vinnuveitandi sér þeim einnig fyrir húsnæði. Í janúar og febrúar mældist atvinnuleysi í Reykjanesbæ 5,4%. Það er ljóst að atvinnulausum mun fjölga með tilheyrandi afleiðingum fyrir samfélagið á Suðurnesjum. Nú reynir á stjórnvöld, hver aðkoma þeirra verður.
Í framhaldi af fundi hæstv. forsætisráðherra með sveitarstjórnarmönnum í morgun vil ég biðja hæstv. forsætisráðherra að fara betur yfir hvaða viðbragða sé að vænta af hálfu ríkisstjórnarinnar. Hvaða ferlar verða virkjaðir? Verða settir fjármunir í að opna skóla fyrir atvinnuleitendur sem vilja styrkja stöðu sína? Munu símenntunarúrræði verða virkjuð í sama tilgangi? Verður komið á skipulögðu samstarfi ríkis og sveitarfélaga um velferð fólks og ekki síst barna á heimilum í erfiðri stöðu? Verður túlkaþjónusta aukin þar sem aðstoða þarf fólk sem talar ekki íslensku?
Kemur til greina að ríkisstjórnin geri að sinni þingsályktunartillögu sem er til vinnslu í umhverfis- og samgöngunefnd, tillögu þingmanna Suðurkjördæmis um að skipa starfshóp fulltrúa sveitarfélaga og ráðuneyta um leiðir til að styrkja stöðu Suðurnesjamanna? Er það ekki upplagt einmitt í þeirri stöðu sem við horfum upp á núna?