149. löggjafarþing — 87. fundur,  1. apr. 2019.

viðbrögð við auknu atvinnuleysi.

[15:26]
Horfa

forsætisráðherra (Katrín Jakobsdóttir) (Vg):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrirspurnina. Mér er kunnugt um þessa tillögu og held að full ástæða sé til að taka hana til frekari skoðunar í þeirri þingnefnd þar sem hún er stödd. Ég vil upplýsa hv. þingmann um að ég fór yfir það á þessum fundi með fulltrúum sveitarstjórna fjögurra sveitarfélaga á Suðurnesjum hvað væri þegar í gangi. Hvað varðar skólamálin og börnin vil ég taka undir með hv. þingmanni að mjög mikilvægt er að huga sérstaklega að stöðu barna í svona málum. Sveitarstjórnarmenn fóru yfir hvað þau hyggjast gera í þeim efnum. Ég fór yfir það að mennta- og menningarmálaráðherra hefur þegar tryggt fjármagn í nýjar námsbrautir í Keili og sömuleiðis er búið að tryggja fjármagn í nýja viðbyggingu við Fjölbrautaskóla Suðurnesja.

Við vorum sérstaklega spurð hvort það stæði og það stendur að sjálfsögðu að við munum halda ótrauð áfram með þá framkvæmd. Einnig er ráðherrann búinn að vera að fara yfir námsframboð af hálfu bæði Keilis, Fisktækniskólans, Fjölbrautaskólans á Suðurnesjum og Símenntunar Suðurnesja auk Þekkingarseturs Suðurnesja til að fara yfir hvernig megi bregðast við því að auka þá enn frekar námsframboð á Suðurnesjum.

Hvað varðar Vinnumálastofnun þekkir hv. þingmaður að sett var sérstakt aukaframlag til að hægt væri að bæta í ráðgjöf og þjónustu við þá sem hafa misst vinnuna á Suðurnesjum. Heilbrigðisráðherra hefur óskað eftir tillögum frá forstjóra Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja og landlækni í ljósi þess líka að lýðheilsuvísar benda til þess að huga þurfi sérstaklega að þeim málum á svæðinu en það sem þar hefur verið til skoðanir er hvort styrkja þurfi sérstaklega og bæta við hjúkrunarfræðingum í skólum á svæðinu, sálfræðiþjónustu og mögulega lengja afgreiðslutíma heilsugæslunnar.