viðbrögð við auknu atvinnuleysi.
Herra forseti. Ég fagna því að ríkisstjórnin skuli ætla að taka á málunum enda er í svona stöðu aðgerðaleysið og afskiptaleysið verst og það mun ýta undir óöryggi og vanlíðan fólks í slæmri stöðu. Nú er ekki tími til þess að draga lappirnar og sjá hvað setur, nú þarf að bretta upp ermar og til þess þarf bæði fjármagn og starfsfólk til að halda utan um aðgerðirnar. Útsvarstekjur margra sveitarfélaga munu að öllum líkindum dragast saman en kostnaður við félagsþjónustu hins vegar aukast.
Hæstv. ríkisstjórn hefur boðað skerðingar á jöfnunarsjóði til tekjustofns sveitarfélaga upp á samtals 3 milljarða kr. á næstu tveimur árum. Jöfnunarsjóður er ætlaður m.a. til þjónustu við fatlað fólk og við börn í sveitarfélögunum. Á Suðurnesjum mun þessi skerðing á jöfnunarsjóði þýða rúmlega 300 millj. kr. á næstu tveimur árum. Mér þykir augljóst að þau áform munu gera róðurinn erfiðari fyrir sveitarfélög í slæmri stöðu og því spyr ég: Ætlar ríkisstjórnin að draga fyrirhugaðar skerðingar úr jöfnunarsjóði til baka?