149. löggjafarþing — 87. fundur,  1. apr. 2019.

viðbrögð við auknu atvinnuleysi.

[15:29]
Horfa

forsætisráðherra (Katrín Jakobsdóttir) (Vg):

Herra forseti. Þessu er nú auðsvarað því að þessi mál eru unnin í samkomulagi við sveitarfélögin og það verða engar skerðingar á jöfnunarsjóði nema samkomulag náist við sveitarfélögin um það og það sé þá gert í samhengi við önnur mál. Slíkt samkomulag er ekki á borðinu þannig að ég held að engin ástæða sé til að hafa miklar áhyggjur af slíkum skerðingum. Þær myndu kalla á lagabreytingar og þær krefjast þess að samkomulag sé gert við sveitarfélögin. Ég átti fund síðast með Sambandi íslenskra sveitarfélaga í gær, m.a. um þessi mál, þannig að ekki verður ráðist í neinar slíkar skerðingar ef samkomulag er ekki fyrir hendi sem væri þá víðtækara og næði til fleiri þátta.